Minnst 15 létust í sprengjuárás á mosku í Pakistan
Öflug sprengja sprakk í mosku nálægt lögreglustöð í norðvesturhluta Pakistans á föstudag, með þeim afleiðingum að minnst 15 manns létust.

Öflug sprengja sprakk í mosku nálægt byggingu sem hýsir lögregluskrifstofur í norðvesturhluta Pakistans á föstudag. Sprengingin varð að minnsta kosti 15 manns að bana og særði 56 aðra, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og björgunarsveitum á svæðinu. Atvikið átti sér stað í bænum Kohat.

