Wolt tvöfaldaði rekstrarhagnað á milli ára
Heimsendingarþjónustan Wolt tvöfaldaði tekjur sínar og skilaði verulegum hagnaði á síðasta ári eftir tap árið áður.
Heimsendingarþjónustan Wolt Enterprise Iceland ehf. tvöfaldaði rekstrartekjur sínar á einu ári, úr 631 milljón króna í 1,24 milljarða króna á milli rekstraráranna 2024 og 2025. Hagnaður félagsins nam 372 milljónum króna, en árið áður var 17 milljóna króna tap á rekstrinum.



