Kylian Mbappé yfirgefur Nike eftir 20 ár og semur við svissneska merkið On
Franska stjarnan Kylian Mbappé hefur bundið enda á tveggja áratuga samstarf við Nike og gerst hluthafi í svissneska íþróttamerkinu On.

Kylian Mbappé hefur lokið 20 ára samstarfi við íþróttarisann Nike og gert samning við svissneska fyrirtækið On. Fyrirliði franska landsliðsins verður jafnframt hluthafi í fyrirtækinu. On, sem hingað til hefur einbeitt sér að hlaupum og tennis, hyggur á stórsókn í knattspyrnu á næsta ári og hefur einnig ráðið Thierry Henry sem yfirmann knattspyrnumála.



