FH-stelpurnar fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum
Íslandsmeistarar FH í 2. flokki kvenna í knattspyrnu fengu loksins afhentan bikarinn í dag á Kaplakrikavelli.

Leikmenn FH í 2. flokki kvenna fengu loksins Íslandsmeistarabikarinn í hendurnar í hálfleik í leik FH og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna á Kaplakrikavelli í dag. Stelpurnar fögnuðu titlinum vel og innilega ásamt stuðningsmönnum í blíðskaparveðri í Hafnarfirði.



