UEFA hafnaði beiðni Íra um að forðast leiki gegn Ísrael
Knattspyrnusamband Írlands óskaði eftir því að dregið yrði í sitt hvora riðlana í framtíðinni en fékk synjun frá UEFA.

Knattspyrnusamband Írlands (FAI) greindi frá því að hafa óskað eftir því við UEFA að írska landsliðið og landslið Ísraels yrðu ekki dregin saman í næstu mótum. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hafnaði hins vegar þeirri beiðni alfarið.



