Noahkai Banks velur þýska landsliðið fram yfir það bandaríska
Efnilegi varnarmaðurinn Noahkai Banks hefur ákveðið að gefa kost á sér í þýska landsliðið í knattspyrnu.

Þýska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að varnarmaðurinn ungi, Noahkai Banks, hefði valið að leika fyrir hönd Þýskalands frekar en Bandaríkjanna. Banks, sem leikur með Augsburg, hefur verið eftirsóttur af báðum löndum en telur framtíð sína liggja hjá Þýskalandi.



