Viljayfirlýsing um stækkun VMA undirrituð
Akureyrarbær og ríkið hafa undirritað viljayfirlýsingu um stækkun Verkmenntaskólans á Akureyri sem mun bæta aðstöðu til verknáms til muna.
Fulltrúar Akureyrarbæjar og mennta- og barnamálaráðuneytisins undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um stækkun Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA). Akureyrarbær mun sjá um framkvæmd viðbyggingarinnar en ríkið mun greiða 60 prósent af kostnaði. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir að þessi stækkun sé liður í stærra átaki til að bæta verknámsskóla landsins. Sambærilegar framkvæmdir eru þegar hafnar á öðrum stöðum svo sem í Breiðholti og Reykjanesbæ.

