Sjö voru í bílnum sem valt á Barðastrandarvegi
Bifreið með sjö manns valt á Vestfjörðum í dag. Einn farþegi kastaðist út og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til.

Alvarlegt umferðarslys átti sér stað á Barðastrandarvegi á Vestfjörðum í dag þegar bifreið með sjö manns innanborðs valt nokkrar veltur. Einn farþeginn kastaðist út úr bílnum við veltuna. Allt tiltækt lið viðbragðsaðila, þar á meðal þyrla Landhelgisgæslunnar, var kallað á vettvang til að aðstoða hina slösuðu.

