Björgunarskíp dró vélarvana skútu til hafnar á Siglufirði
Björgunarskipið Sigurvin aðstoðaði erlenda skútu sem varð vélarvana úti fyrir Norðurlandi í dag. Þrír voru um borð og gekk björgunin vel.
Björgunarskipið Sigurvin dró skútu til hafnar á Siglufirði síðdegis í dag eftir að bilun kom upp í vél hennar. Ekki var nægur vindur til að knýja skútuna áfram með seglum. Þrír erlendir ferðamenn voru um borð og höfðu þeir samband við hjálparsveitir í morgun. Eftir að ljóst varð að skútan kæmist ekki leiðar sinnar hjálparlaust var ákveðið að senda björgunarskip til móts við hana.

