Koparkerfi Mílu verður lokað í Fjarðabyggð á næsta ári
Míla stefnir að því að ljúka ljósleiðaravæðingu í Fjarðabyggð vorið 2027 og mun í kjölfarið loka gamla koparkerfinu á svæðinu.

Míla hefur tilkynnt að koparkerfi fyrirtækisins í Fjarðabyggð verði lokað í síðasta lagi 1. maí á næsta ári. Lokunin tengist framförum í fjarskiptainnviðum en stefnt er að því að ljósleiðaravæðingu sveitarfélagsins ljúki á sama tíma. Erik Figueras Torras, forstjóri Mílu, og forsvarsmenn Fjarðabyggðar hafa undirritað samkomulag þess efnis, sem markar lok ákveðins tímabils í fjarskiptasögu svæðisins.


