Að minnsta kosti tveir létust í árás Rússa á íbúðarhús í Sumy
Rússnesk loftárás eyðilagði hluta af íbúðarhúsi í úkraínsku borginni Sumy með þeim afleiðingum að að minnsta kosti tveir létust.

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, greindi frá árásinni sem átti sér stað seint á föstudag. Myndir frá vettvangi sýna stórt gat í gegnum þrjár hæðir hússins.



