Leikarinn Gerrit Graham er látinn
Leikarinn Gerrit Graham, sem var þekktastur fyrir hlutverk sín í Star Trek og Phantom of the Paradise, er látinn, 76 ára að aldri.

Gerrit Graham, leikarinn sem þekktur var fyrir hlutverk sín í Phantom of the Paradise (1974) og Star Trek, er látinn. Hann var 76 ára. Leikarinn lést úr lungnasjúkdómi og öðrum fylgikvillum sl. þriðjudag í Rhinebeck, New York. Graham fæddist 27. nóvember 1949 í New York og nam við Columbia-háskóla.



