Friðargæsla SÞ undir miklum þrýstingi
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í dag um vaxandi áskoranir friðargæsluliða sem eru sendir á svæði þar sem engan frið er að finna og skortir bjargir til að verjast ofbeldi.

António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, upplýsir Öryggisráðið í dag um erfiða stöðu friðargæslunnar. Friðargæsluliðar eru í vaxandi mæli sendir á svæði þar sem ekkert raunverulegt friðarferli er í gangi, þeir eru illa vopnaðir miðað við andstæðinga sína og varnarlausir gagnvart skipulögðu ofbeldi. Fundurinn í New York miðar að því að finna leiðir til að brúa bilið á milli verkefna friðargæslunnar og þeirra bjarga sem hún hefur til umráða til að tryggja öryggi starfsmanna og almennings.


