„Neyðarhnappurinn“ fyrir gervigreind útskýrður
Stjórnmálamenn og leiðtogar í tæknigeiranum velta nú fyrir sér virkni sérstaks öryggishnapps til að stöðva gervigreind ef hún fer úr böndunum.

Áhyggjur af stjórnlausri gervigreind fara vaxandi og nú eru stjórnmálamenn og forystufólk í tækniiðnaðinum farið að ræða af alvöru nauðsyn þess að hafa sérstakan neyðarhnapp, eða „kill switch“. Slíkur hnappur á að geta stöðvað öll gervigreindarkerfi ef þau fara að sýna merki um hættulega hegðun. Sumir sérfræðingar telja þetta þó vera of lítið og of seint, en mikilvægt sé að festa slík öryggisákvæði í lög sem fyrst.



