Rússar leggja úkraínska járnbrautakerfið í einelti með drónum
Rússneskir herdrónar herja nú á lestir og jánbrautateina í Úkraínu í þeim tilgangi að lama flutningakerfi landsins.

Rússar hafa herpt netið að úkraínska járnbrautakerfinu á síðustu vikum. Með því að gera skipulegar drónaárásir á lestir og þá 20.000 kílómetra af teinum sem flytja vistir og fólk um landið, vonast rússneski herinn til að draga verulega úr mótstöðuafli Úkraínu. Járnbrautin er lífæð landsins og hafa Úkraínumenn þurft að bregðast hratt við til að gera við skemmdir og tryggja öryggi flutninga undir stöðugri ógn úr lofti.


