Nýjasta Resident Evil myndin slær í gegn á frumsýningardegi
Zombie-hryllingurinn Resident Evil þénaði yfir 26 milljónir dala á fyrsta degi í Bandaríkjunum og er vinsælasta myndin.

Kvikmyndahúsagestir virðast tilbúnir í hryllinginn þegar haustið nálgast, en nýjasta Resident Evil myndin eftir Zach Cregger hefur farið frábærlega af stað. Myndin þénaði 26,3 milljónir dala á frumsýningardeginum í Bandaríkjunum einum saman og er langvinsælasta nýja myndin í sýningu. Gera má ráð fyrir að hún haldi efsta sæti listans yfir helgina enda hefur hún fengið góðar viðtökur hjá aðdáendum zombí-hryllings.



