Guðmundur Árni sakar stjórnendur í Hafnarfirði um vanhæfi
Vegna tafa á Tækniskólamálinu segir Guðmundur Árni Stefánsson að vanhæfi bæjarstjóra Hafnarfjarðar blasi við.
Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, gagnrýnir bæjarstjóra Hafnarfjarðar harðlega vegna tafa á verkefnum tengdum Tækniskólanum. Hann segir að það liggi ljóst fyrir að seinagangurinn stafi af vanhæfi stjórnenda bæjarins og að bæjarstjórarnir tveir beri höfuðábyrgð. Guðmundur fullyrðir að Samfylkingin hafi ítrekað varað við ástandinu án þess að á það væri hlustað.

