Eldur slökktur í bíl nærri Rauðhólum
Slökkvilið var kallað út í nótt vegna bílelda við Rauðhóla. Engum varð meint af en bíllinn er mikið skemmdur.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Rauðhólum nærri Suðurlandsvegi um klukkan eitt í nótt vegna bíls sem var alelda. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra var bíllinn kyrrstæður þegar eldurinn kom upp og ekki er talið að neinn hafi verið í hættu. Slökkva tókst eldinn á skömmum tíma og var brakið flutt burt um hálf þrjú leytið eftir að vettvangsvinnu lauk.
