Eldur kom upp í tölvu ofan á eldavél
Slökkviliðið var kallað út í Hlíðahverfi eftir að kveikt varð í tölvu sem skilin hafði verið eftir á eldavél.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk útkall vegna eldsvefs í Hlíðahverfi í Reykjavík þar sem tölva hafði verið skilin eftir ofan á eldavél með þeim afleiðingum að eldur kom upp. Mikill reykur myndaðist og fóru reykskynjarar í gang. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra var búið að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn, en veruleg vinna fór í að reykræsta húsnæðið. Sem betur fer var eldurinn ekki mikill en mikil hætta getur skapast þegar raftæki eru skilin eftir á heitum hellum.

