Njósnari frá Google komst inn í hóp tölvuþrjóta
Ógnargreiningardeild Google tókst að koma sérfræðingi fyrir innan raða hins alræmda hóps TeamPCP.

Google hefur greint frá því að rannsakandi á þeirra vegum hafi starfað sem njósnari innan tölvuþrjótahópsins TeamPCP. Þetta gerði Google kleift að fylgjast með umfangsmiklum tölvuárásum hópsins, vara fórnarlömb við og trufla starsemi þeirra áður en lögregla handtók meðlimi hópsins.


