Ferðaþjónustufyrirtæki á Sólheimajökli sammála um aukið öryggi
Formaður nýs fagráðs um öryggismál á Sólheimajökli fagnar auknu samstarfi fyrirtækja til að tryggja öryggi ferðamanna.
Stofnað hefur verið nýtt fagráð ferðaþjónustufyrirtækja sem starfa á Sólheimajökli með það að markmiði að efla öryggi og samvinnu. Stephan Mantler, formaður ráðsins, segir að það sé afar jákvætt að fyrirtækin vinni saman, sérstaklega eftir að Veðurstofan varaði við hættulegum aðstæðum í sumar. Fyrsta verkefni ráðsins verður að bæta viðbragðsáætlanir og finna öruggar leiðir fyrir alla hópa á jöklinum, óháð veðri og færð.
