Hvalveiðivertíðinni lokið í ár – 93 hvalir veiddir
Langreyðaveiðum hefur verið lokið fyrr en áætlað var vegna slæmrar veðurspár. Alls voru veiddar 93 langreyðar á vertíðinni.
Hvalsvertíðinni hjá Hval hf. er lokið þetta árið, en skipin tvö, Hvalur 8 og Hvalur 9, eru komin til hafnar í Reykjavík. Kristján Loftsson, forstjóri félagsins, staðfesti í samtali við fréttastofu að 93 langreyðar hefðu veiðst á 94 dögunum sem veiðar stóðu yfir. Slæmt veður hafði mikil áhrif á vertíðina og var ákveðið að hætta fyrr en til stóð þar sem spá næstu viku er óhagstæð. Ýmis deilumál komu upp í sumar, meðal annars vegna mótmæla og breytts eftirlits MAST.
