Arnar ómyrkur í máli um Sverri Inga – „Það var bara ömurlegt“
Arnar Þór Viðarsson lýsti yfir vonbrigðum sínum með meiðsli Sverris Inga Ingasonar, sem sleit krossband í sumar, en hann er lykilmaður í vörn landsliðsins.

Tíðindin af krossbandaslitum Sverris Inga Ingasonar í sumar voru mikið áfall fyrir íslenska landsliðið í fótbolta. Arnar Þór Viðarsson segir stöðuna vera ömurlega enda sé Sverrir lykilmaður í vörninni og breiddin í stöðu miðvarða hjá liðinu sé ekki mikil.



