Trump boðar breyyingar á sigurboganum: Skal verða hernaðarmannvirki með drónum
Donald Trump segir að uppfærðar áætlanir um nýjan sigurboga geri ráð fyrir hernaðarlegu hlutverki mannvirkisins vegna þjóðaröryggis.

Donald Trump hefur greint frá því að fyrirhugaður sigurbogi muni ekki eingöngu vera minnismerki, heldur hluti af víðtæku hernaðarmannvirki. Samkvæmt Trump hafa áætlanir verið uppfærðar að beiðni bandaríska hersins, en búist er við að svæðið verði búið drónum og leyniskyttum í nafni þjóðaröryggis. Þessar vendingar hafa vakið athygli og umræðu um samspil minnisvarða og vígbúnaðar.



