Starfsleyfi sex lækna afturkölluð eftir rannsókn
Embætti landlæknis hefur fellt úr gildi starfsleyfi sex lækna í kjölfar umfangsmikillar skoðunar á málum 13 lækna sem störfuðu hér á landi.
Embætti landlæknis hefur afturkallað starfsleyfi sex lækna og sett takmarkanir á leyfi þess sjöunda eftir sérstaka skoðun. Tilefnið var umfjöllun Heimildarinnar í kjölfar alþjóðlegrar rannsóknar á læknum sem höfðu misst réttindi sín í einu landi en haldið þeim í öðru. Landlæknisembættið skoðaði mál 13 lækna og taldi tilefni til aðgerða í sjö þeirra.

