Gular viðvaranir vegna storms á suðvestanverðu landinu
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa vegna hvassviðris og rigningar í dag. Farartæki sem taka á sig mikinn vind eru í hættu.
Stormur er nú syðst á landinu og mjög hvasst er víða framan af degi ásamt töluverðri rigningu. Veðurstófan hefur gefið út gular viðvaranir sem gilda á Suðurlandi og við Faxaflóa og er fólk hvatt til að sýna aðgát. Þegar líður á daginn mun vindáttin breytast og verða suðlægari, en þá er búist við mestum hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi.
Veðrið getur reynst varasamt farartækjum sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsbílum og pallbílum, og er fólki ráðlagt að ganga frá lausamunum utandyra svo þeir fjúki ekki. Veðrið mun ganga niður þegar líður á kvöldið en búast má við skúrum og vindi áfram á morgun, sérstaklega á suðvestanverðu landinu, en yfirleitt verður bjartara yfir norðaustanlands.

