Ungir menn í Texas veikjast af dularfullum nýrnasjúkdómi
Læknar í Texas hafa greint aukningu á langvinnum nýrnasjúkdómum af óþekktum uppruna hjá heilbrigðum ungum mönnum. Sjúkdómurinn getur verið banvænn.

Læknar í Texas hafa lýst yfir áhyggjum vegna aukningar á tilfellum langvinnra nýrnasjúkdóma af óþekktum uppruna (CKDu). Sjúkdómurinn herjar sérstaklega á heilbrigða unga menn, oft af rómönskum uppruna, og getur verið banvænn ef hann greinist ekki snemma. Enn er óvitað hvað veldur sjúkdóminum en vísindamenn rannsaka nú hvort umhverfisþættir eða vinnuaðstæður spili þar rullu.


