Andri Nikolyasson Mateev í 5. sæti á heimsbikarmóti í skylmingum
Andri Nikolyasson Mateev náði frábærum árangri á heimsbikarmóti í skylmingum í Búlgaríu þar sem hann hafnaði í 5. sæti af 102 keppendum.
Skylmingakappinn Andri Nikolyasson Mateev náði eftirtektarverðum árangri á alþjóðlegu heimsbikarmóti í skylmingum, Sofia Cup 2026, sem fram fór í Búlgaríu um helgina. Andri hafnaði í 5. sæti af alls 102 keppendum eftir að hafa unnið fimm af sex bardögum í riðlakeppni og komist alla leið í 8-liða úrslit. Þar mátti hann þola knappt tap, 12-15, gegn Ítalanum Cosimo Bertini. Með árangrinum hefur Andri hækkað um 25 sæti á heimslistanum og situr nú í 82. sæti, sem styrkir stöðu hans í baráttunni um sæti á heimsmeistaramótinu.



