Ísraelska knattspyrnusambandið gagnrýnir Heimi Hallgrímsson harðlega
Ísraelska knattspyrnusambandið bregst á harkalegan hátt við gagnrýni Heimis Hallgrímssonar, þjálfara írska landsliðsins, á ástandið á Gasa.

Ísraelska knattspyrnusambandið hefur kallað Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara Íra, heimskan og hræsnara vegna ummæla hans um stríðsrekstur Ísraela á Gasa. Heimir vakti athygli með gagnrýni sinni sem hefur hleypt illu blóði í samskipti þessara aðila.



