Orri Steinn rekinn af velli í spænsku deildinni
Orri Steinn Óskarsson fékk rauða spjaldið með óvenjulegum hætti þegar Real Sociedad lagði Valencia í spænsku úrvalsdeildinni.

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsframherji Íslands, fékk að líta rauða spjaldið í leik Real Sociedad gegn Valencia í spænsku úrvalsdeildinni. Atvikið þótti furðulegt en Orri fékk tvö gul spjöld á sömu mínútunni. Þrátt fyrir þetta vann Real Sociedad leikinn 3:2.



