Morphotonics tryggir sér sex milljarða fyrir skjátækni
Hátæknifyrirtækið Morphotonics tryggði sér 40 milljónir evra til að útvíkka starfsemi sína yfir í gagnaver.

Hátæknifyrirtækið Morphotonics hefur tryggt sér 40 milljónir evra, jafnvirði um sex milljarða króna, í nýrri fjármögnunarlotu. Fyrirtækið ætlar að nota fjármagnið til að færa skjátækni sína yfir á svið gagnavera. Meðal fjárfesta eru stórfyrirtæki á borð við 3M Ventures, auk Innovation Industries, BOM og Invest-NL. Morphotonics sérhæfir sig í ör- og nanóprentun á stóra fleti, tækni sem getur bætt skilvirkni og afköst í margs konar rafeindabúnaði og gagnaverum framtíðarinnar.



