Mbappé yfirgefur Nike eftir 20 ára samstarf
Knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé hefur skrifað undir hjá svissneska merkinu On eftir langan tíma hjá Nike.

Knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé hefur bundið enda á 20 ára samstarf sitt við íþróttarisann Nike og gengið til liðs við svissneska vörumerkið On. Í samtali við CNBC sagðist Mbappé hafa fundið að nú væri rétti tíminn fyrir breytingar. On, sem er þekktast fyrir hlaupaskó sína, er nú að færa sig upp á skaftið í heimi fótboltans og er Mbappé stærsta nafnið hingað til sem skrifar undir hjá fyrirtækinu. Mbappé telur að nýja samstarfið gefi honum tækifæri til að hafa meiri áhrif á hönnun og framleiðslu þeirra afurða sem hann ber.



