Samskipti Hafnarfjarðarbæjar við lóðarhafa lítil síðustu 3 ár
Lóðareigandi í Hafnarfirði segir litla hreyfingu hafa verið á samskiptum við bæinn vegna lóðauppkaupa fyrir Tækniskólann.
Haraldur Reynir Jónsson, lóðareigandi í Hafnarfirði, segir í samtali við Heimildina að samskipti við bæjaryfirvöld hafi verið í lágmarki síðustu ár vegna fyrirhugaðra lóðauppkaupa í tengslum við uppbyggingu Tækniskólans. Haraldur fékk tilboð árið 2023 sem hann hafnaði, en síðan þá hefur ekkert móttilboð borist frá bænum. Hvorki fyrrverandi né núverandi bæjarstjórar hafa viljað tjá sig um málið.


