Eru börn raunverulega að læra í íþróttum eða bara að bíða í röð?
Nýjar rannsóknir benda til þess að leikjafræði í íþróttaþjálfun barna skili betri árangri en hefðbundnar endurtekningaræfingar þar sem börn eyða miklum tíma í biðraðir.

Margar fjölskyldur velta fyrir sér hvers konar íþróttastarf henti börnum þeirra best, en sjaldnar er spurt hvað barnið sé raunverulega að upplifa og læra á æfingum. Algengt er að sjá æfingar þar sem börn standa í röð, framkvæma eina hreyfingu og fara síðan aftur aftast í röðina. Þótt endurtekning eigi sinn stað í námi, skilar hún litlum árangri ef barnið þarf lítið að hugsa eða taka ákvarðanir.
Sérfræðingar mæla þess í stað með leikjafræðilegri nálgun (e. game-based approach). Í stað þess að einangra tæknileg atriði eru búnar til aðstæður, svo sem þrír gegn einum, þar sem börnin þurfa sjálf að finna lausnir og taka ákvarðanir í síbreytilegu umhverfi. Markmiðið er ekki aðeins að búa til flinka íþróttamenn heldur einnig sjálfstæða einstaklinga sem geta átt samskipti, tekið ábyrgð og leyst vandamál. Þjálfarar eru hvattir til að spyrja opinna spurninga í stað þess að gefa öll svörin fyrirfram.


