Ozzfest snýr aftur til Bandaríkjanna árið 2027
Eftir næstum áratugar hlé hefur verið staðfest að þungarokkshátíðin Ozzfest verði haldin í Bandaríkjunum árið 2027, auk tónleika í Englandi.

Forsvarsmenn Ozzfest hafa tilkynnt að hin vinsæla þungarokkshátíð muni snúa aftur til Bandaríkjanna árið 2027, en hátíðin hefur ekki verið haldin þar í landi í tæpan áratug. Þetta kemur í kjölfar frétta um að hátíðin verði einnig haldin í Birmingham í Englandi, heimaborg Ozzie Osbourne heitins.
Sharon Osbourne, ekkja Ozzy, hefur lengi unnið að því að endurvekja hátíðina, sem hún stofnaði árið 1996. Ozzy lést árið 2025, en Sharon segir að það hafi verið mikil ástríða hans að gefa ungu hæfileikafólki tækifæri á stóra sviðinu. Samningar við Live Nation eru nú í gangi og búist er við frekari upplýsingum um dagsetningar og skipulag hátíðarinnar á næstunni.

