Spencer lávarður sakar konungsfjölskylduna um illa meðferð á Díönu
Í nýrri bók sinni gagnrýnir Spencer lávarður, bróðir Díönu prinsessu, bresku konungsfjölskylduna harðlega fyrir framkomu þeirra í garð systur hans.

Áratugirnir hafa ekki dregið úr reiði Spencers lávarðar vegna meðferðar Windsor-ættarinnar á Díönu, fyrrverandi prinsessu af Wales. Í nýrri bók sinni, „Swan Song: Diana, My Sister“, sem kemur út á þriðjudag, vandar hann Karli konungi ekki kveðjurnar. Spencer ræddi bókina í nýlegu viðtali við BBC þar sem hann ítrekaði gagnrýni sína á stofnunina og áhrif hnnar á líf systur sinnar.

