Írskir íþróttamenn hvetja landsliðið til að sniðganga leiki gegn Ísrael
Hópur írskra íþróttamanna þrýstir á karlalandsliðið í knattspyrnu að leika ekki gegn Ísrael vegna hernaðaraðgerða þeirra á Gasaströndinni.
Aukinn þrýstingur er nú á írska knattspyrnusambandið að karlalandsliðið sniðgangi leiki sína gegn Ísrael. Írska ríkisstjórnin hefur verið harðorð í garð Ísraels vegna stríðsrekstursins í Gasa og nú hafa margir af fremstu íþróttamönnum landsins slegist í hóp gagnrýnenda. Deilan sýnir hvernig stjórnmál og íþróttir geta fléttast saman á erfiðum tímum.



