Lögreglan í Manchester stöðvar samsæri gegn gyðingasamfélaginu
Tveir menn voru handteknir í Manchester á sunnudag grunaðir um að haft skipulagt hryðjuverk sem beindust gegn gyðingum í borginni.

Hryðjuverkalögreglan í Manchester greindi frá því að tveir menn hafi verið handteknir á sunnudag vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka. Samkvæmt upplýsingum lögreglu beindist samsærið gegn gyðingasamfélaginu í Manchester og er málið litið mjög alvarlegum augum. Lögreglan segist hafa rannsakað málið um nokkurt skeið og að handtökurnar hafi komið í veg fyrir yfirvofandi hættu. Öryggisgæsla hefur verið aukin við bænahús og samkomustaði gyðinga í borginni í kjölfarið.


