Íslendingar í eldlínunni í Meistaradeild kvenna
Keppni í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu hófst í dag. Glódís Perla Viggósdóttir og Bayern München gerðu jafntefli við Manchester City á meðan aðrir Íslendingar mættust í Mílanó.
Keppni hófst í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu í dag þar sem nokkrir íslenskir landsliðsmenn voru í eldlínunni. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, lék allan leikinn í vörn Bayern München þegar liðið tók á móti Manchester City. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli þar sem Bayern missti niður tveggja marka forystu á lokamínútunni.
Í Mílanó mættust Inter og sænska liðið Häcken í hreinum Íslendingaslag. Häcken fór með sigur af hólmi, 1-0. Thelma Karen Pálmadóttir lék með Häcken en hjá Inter lék Cecilía Rán Rúnarsdóttir allan leikinn í markinu og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á sem varamaður á 56. mínútu.

