Segir landamæralögregluna neita sér um læknisaðstoð
Venesúelskur hælisleitandi, sem var skotinn af bandarískri landamæralögreglu í Austin í Texas, gagnrýnir skort á læknisþjónustu og segist enn vera með kúlu í líkamanum.

Eftir mikil mótmæli og þrýsting frá stjórnmálamönnum í Texas var maðurinn, sem særðist í átökum við ICE-lögregluna, aftur lagður inn á sjúkrahús. Hann segist ekki skilja hvernig yfirvöld geti neitað honum um að láta fjarlægja kúluna úr líkama sínum, en hann var skotinn við töku í Austin fyrr í mánuðinum.


