Þrír færðir fyrir dómara grunaðir um fíkniefnabrot
Að minnsta kosti þrír menn voru færðir fyrir dómara í kvöld eftir umfangsmikla lögregluaðgerð vegna gruns um stórfelld fíkniefnabrot og peningaþvætti.

Lögreglan færði að minnsta kosti þrjá einstaklinga fyrir dómara í kvöld í kjölfar umfangsmikilla handtaka fyrr um daginn. Aðgerðirnar tengjast rannsókn á skipulegri brotastarfsemi, þar á meðal stórfelldum fíkniefnalagabrotum og peningaþvætti. Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi að sögn yfirvalda.
