Bandaríkin boða 10 milljarða dala orkusjóð í Mið-Austurlöndum
Donald Trump ræðir nú um stofnun sjóðs með bandamönnum í Arabaheiminum sem myndi fjármagna nýja orkuinnviði til að draga úr mikilvægi Hormússunds.

Bandaríkjastjórn hefur lagt til stofnun 10 milljarða dala sjóðs í samstarfi við bandamenn sína í Mið-Austurlöndum. Markmiðið er að byggja upp nýja innviði til flutnings á orku sem gerir ríkjum kleift að flytja olíu og gas án þess að treysta á Hormússund, sem hefur lengi verið viðkvæmur punktur í heimspólitíkinni.

