Rannsókn FBI á Susan Collins stöðvuð eftir inngrip Trump
Nýjar upplýsingar benda til þess að víðtæk spillingarrannsókn FBI á bandaríska öldungadeildarþingmanninum Susan Collins hafi verið lögð niður eftir valdatöku Donalds Trump.

Fréttamiðillinn ProPublica hefur afhjúpað gögn sem sýna að FBI hafi verið með öldungadeildarþingmanninn Susan Collins til rannsóknar vegna gruns um spillingu. Rannsóknin tengdist meintum greiðslum í skiptum fyrir opinbera fyrirgreiðslu. Samkvæmt heimildum ProPublica var rannsóknin í fullum gangi þar til Donald Trump tók aftur við völdum, en þá var dregið úr styrk spillingardeilda FBI og dómsmálaráðuneytisins. Collins neitar öllum ásökunum og segir þær út í hött.



