Hilary Duff framlengir tónleikaferðalag sitt fram á árið 2027
Poppstjranan hefur tilkynnt 32 nýja tónleika í Evrópu, Rómönsku Ameríku og Bandaríkjunum eftir mikla velgengni fyrr á árinu.

Hilary Duff heldur áfram að gera það gott á tónleikasviðinu og hefur nú bætt við fjölmörgum dagsetningum á „Lucky Me“ tónleikaferðalagið sitt. Nýju tónleikarnir hefjast í Madríd í maí 2027 og enda í Anaheim í nóvember sama ár. Með henni í för verða listamenn eins og Rebecca Black, Dashboard Confessional og Tegan and Sara. Þetta er hennar fyrsta stóra heimsreisa í tvo áratugi.

