Sex í gæsluvarðhald vegna peningaþvættis og fíkniefna
Sex einstaklingar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu tengdar fíkniefnamisferli og peningaþvætti.
Sex manns hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í kjölfar umfangsmikilla aðgerða Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðirnar voru liður í rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi er varðar fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Í tilkynningu frá lögreglu segir að húsleitir hafi verið gerðar á nokkrum stöðum. Samhliða þessu greindi fyrirtækið BL frá því að einn framkvæmdastjóra þess hafi verið settur í leyfi eftir að lögregla leitaði hjá fyrirtækinu.
