Óttast að hálf milljón láti lífið vegna El Niño hita
Vísindamenn hjá háskólanum í Chicago vara við því að um 450 þúsund manns gætu dáið á næstu sex mánuðum vegna mikils hita sem stafar af veðurfyrirbærinu El Niño.
Loftslagsvísindamenn telja að meira en 450 þúsund manns gætu látið lífið á næsta hálfa ári vegna aukins hita sem veðurfyrirbærið El Niño veldur. Fyrirbærið er þegar farið að valda miklu tjóni, meðal annars í Indónesíu og Suður-Ameríku, og lýst hefur verið yfir neyðarástandi í Kaliforníu. Sérfræðingar telja að El Niño sé sterkara nú en oft áður og að loftslagsbreytingar af mannavöldum auki mjög á styrk þess. Talið er að áhrifin verði mest í löndum eins og Nígeríu, Indlandi og Brasilíu.


