Heimir þakklátur fyrir stuðninginn í storminum: „Kannski ekki klókt hjá mér“
Heimir Hallgrímsson, þjálfari Íra, lýsir þakklæti sínu fyrir stuðninginn þrátt fyrir deilur eftir ummæli hans um Ísrael. [RÚV Íþróttir]
Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlalandsliðsins í fótbolta, segist þakklátur fyrir stuðninginn sem hann hefur fengið í kjölfar ummæla sinna um Ísrael. Heimir fékk mikla gagnrýni frá ísraelska knattspyrnusambandinu en hann segir að leikmenn og þjálfarateymið standi saman. Hann viðurkennir þó að ummælin hafi tekið athyglina frá komandi leikjum.



