Loftmengun í Ulaanbaatar bitnar harkalega á heilsufari barna
Kolakyntir ofnar og orkuver valda gríðarlegri loftmengun í Mongólíu sem leiðir til alvarlegra öndunarfærasjúkdóma hjá börnum. [Reuters]

Loftmengun í höfuðborg Mongólíu, Ulaanbaatar, er sú mesta í heiminum á veturna. Mengunin stafar aðallega frá kolakynntum ofnum í heimahúsum og orkuverum. Rannsóknir sýna að þetta ástand bitnar sérstaklega illa á börnum sem glíma við tíða öndunarfærasjúkdóma og lungnaskemmdir vegna eitraðs loftsins í borginni.

