Zelensky svarar rússneskum áróðursmanni fullum hálsi
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti gaf lítið fyrir spurningar rússnesks fréttamanns um hvenær hann hygðist heimsækja Moskvu.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti svaraði rússneskum áróðursmanni fullum hálsi á hliðarlínu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Fréttamaðurinn, Valentin Bogdanov, kallaði ítrekað á Zelensky og spurði hvenær hann kæmi til Moskvu, sem Kremlverjar hafa sett sem skilyrði fyrir fundi forsetanna. Zelensky svaraði af stuttu máli: „Á eldflaug,“ og bætti við orðbragði sem erfitt var að greina á upptöku, en skilaboðin voru skýr.


