Svissneski seðlabankinn breytir um stefnu
Seðlabanki Sviss hélt stýrivöxtum óbreyttum í núlli en dregur úr hótunum sínum um inngrip á gjaldeyrismarkaði.

Seðlabanki Sviss (SNB) hefur ákveðið að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í núlli. Jafnframt dregur bankinn úr hótunum sínum um að grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að veikja svissneska frankann, þrátt fyrir að hafa hækkað verðbólguspár sínar. Þetta þykir benda til þess að bankinn telji frankann vera að færast nær jafnvægi og að minni hætta sé á ofstyrkingu hans en áður var talið.

